sunnudagurinn 5. september

Rekstrarumsjón - húsfélög

Eignaumsjón hf. sérhæfir sig í rekstarumsjón með fasteignum, hvort sem um atvinnuhúsnæði eða íbúðarhúsnæði er að ræða.

 

Helstu þættir rekstarumsjónar eru:

        Umsjón með rekstri húsfélags, þar með talin innheimta allra gjalda

  • Umsjón með öllum greiðslum á vegum húsfélags, færsla bókhalds og gerð ársreikninga
  • Að vera ráðgefandi um allan rekstur húsfélagsins og leita hagkvæmustu leiða við reksturinn hverju sinni
  • Að sjá um samninga um afsláttarkjör sem geta sparað húsfélögum og íbúum þeirra verulegar fjárhæðir
  • Að sjá um aðalfundi, undirbúning, fundarboð, fundarstjórn og frágang reikninga fyrir fund
  • Að sjá um útvegun iðnaðarmanna og samskipti við þá
  • Aðstoða við tryggingamál og leita eftir hagstæðustu tilboðum
  • Að eiga samskipti við íbúa og leysa minniháttar vandamál
  • Að afla tilboða í þrif á sameign, bílageymslu og umsjón með lóð
  • Að leggja fram tillögu að hússjóðs- og framkvæmdagjöldum
  • Gerð yfirlýsinga um stöðu seljanda hjá húsfélaginu við fasteignaviðskipti
  • Önnur skyld verkefni

Markmið rekstrarumsjónar er að gera rekstur húsfélagsins markvissari og ódýrari, auðvelda stjórnunarstörf og spara tíma þeirra sem að húsfélagi standa og auka samheldni og koma í veg fyrir ágreiningsmál. Forðist óþarfa útgjöld og  ágreining og látið Eignaumsjón sjá um rekstur húsfélagsins.

Nýjustu fréttir

Eignaumsjón hf | Suðurlandsbraut 30 | Sími 585 4800 | Fax 585 4801 | Kennitala 501000 3020 | afgreidsla<hjá>eignaumsjon.is