Er staðgengill húsvarðarins fundinn?
Þeir sem koma að rekstri fasteignar eða húsfélags þekkja að það eru býsna mörg viðvikin sem ein fasteign þarf á að halda ef hlutirnir eiga að vera í lagi.
Í húsum þar sem ekki er sérstakur húsvörður til að sinna málum lenda þessi verk gjarnan á umhyggjusömum stjórnarmönnum eða einfaldlega drabbast og dragast.
Eignaumsjón hefur sett á laggir deild sem mun sinna eftirliti fasteigna fyrir stjórnir húsfélaga. Þetta er nokkurs konar “farand-húsvörður” sem hefur viðkomu með reglulegu millibili í viðkomandi húsi, t.d. vikulega. Eftirlitsmaður starfi í nánum tengslum við þjónustuborð Eignaumsjónar m.a. til að koma ábendingum milli aðila.
Verklýsingu eftirlitsmanns verði lýst í samningi hússtjórnar og Eignaumsjónar hf. og henni verði síðan fylgt nákvæmlega eftir. Meðal atriða í verklýsingu verði m.a. eftirfarandi :
Eftirlit með sameign utanhúss og innan
dæmi; líta eftir allri sameign, tryggja að allt sé í lagi,
bletta veggjakrot, fjarlægja mest af rusli á lóð og bílastæðum
fylla í niðurföll (sem eiga til að þorna…osfrv.)
Peruskipti,
dæmi; halda lager yfir perur og helstu viðhaldsvörur, skipta þegar þarf…
Smáviðgerðir,
dæmi; smyrja og herða hurðaskrár og lamir, útvega og skipta um brotnar
rúður…
Eftirlit með þjónustuaðilum
dæmi; gagnrýna vinnu þjónustuaðila, þrif, sláttur, snjómokstur osfrv.
gera skriflegar athugasemdir til viðkomandi með ósk um úrbætur
Eftirlit með orkunotkun
dæmi: skrá orkunotkun reglulega,
fara inn í séreignir ef grunur leikur á ofnotkun osfrv.
Tillögur til hússtjórnar
dæmi: greina hússtjórn frá ástandi eignar, umgengni,
frammistöðu þjónustuaðila
gera tillögur að reglum, um minniháttar viðhald osfrv.
Hverju fjöleignarhúsi þarf að finna heppilega umgjörð og það þarf einnig að koma til móts við væntingar eigenda þess. Það þarf að tryggja að umgengni sé góð, þrifin í lagi, það þarf að dytta að og huga að fyrirbyggjandi viðhaldi. Og allir vita að góður húsvörður er gulls ígildi.
Ætla má að að þjónusta við reglubunda liði, s.s. þrif, tunnuskipti, slátt ofl.ofl. ásamt því eftirliti sem hér er lýst, sé mun ódýrari kostur en stofna til launaðs húsvarðar.