Leiguumsjón
Eignaumsjón hf. sérhæfir sig í leiguumsjón fyrir eigendur stærri fasteigna hvort sem um íbúðar- eða atvinnuhúsnæði er að ræða.
Innifalið í Leiguumsjón er:
· Útvegun leigjenda, könnun bakgrunns þeirra, m.a. hjá Lánstrausti
· Gerð leigusamnings
· Gerð tryggingavíxla
· Innheimta leigugjalda
· Færsla bókhalds
· Samskipti við leigutaka
· Samskipti við opinbera aðila
Markmið Leiguumsjónar er að auðvelda fasteignaeigendum útleigu fasteigna sinna og hámarka arð eignarinnar.