Dagdeild öldrunar á Landakoti fékk á dögunum afhentan færanlegan ofn með helluborði að gjöf frá Eignaumsjón.
„Ofninn kemur svo sannarlega að góðum notum og vakti mikla lukku þegar hann var tekinn í notkun, þegar ilmurinn af bakstrinum breiddist út um deildina,“ segir Guðný Valgeirsdóttir, deildarstjóri á dag-, göngu- og samfélagsdeild L0/L1 , þar sem fer fram endurhæfing aldraðra sem geta nýtt sér meðferð á daginn en dvalið heima á kvöldin og um helgar.
Nýtist vel fyrir okkar starfsemi
„Markmið okkar er að aðstoða fólk við að viðhalda hæfni sinni og takast á við breytingar á heilsufari. Meðan á endurhæfingartímabilinu stendur koma þeir sem eru í prógramminu til okkar tvisvar til þrisvar í viku, í 4 til 5 tíma í senn. Fyrri hópurinn kemur inn á morgnana og er fram yfir hádegi en seinni hópurinn kemur í hádeginu og er fram á daginn. Allir eru saman í mat í hádeginu og þá kemur ofninn og helluborið sér vel. Næring er mikilvægur þáttur af meðferð sem fer fram á dagdeildarhluta. Því nýtist þessi gjöf sérstaklega vel fyrir okkar starfsemi og kunnum við Eignaumsjón bestu þakkir fyrir,“ bætir Guðný við.
Ánægjulegt að geta lagt lið
„Það er okkur ánægjuefni að hafa getað lagt dagdeildinni smá lið með þessum hætti,“ segir Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar. „Við þekkjum það vel, eftir tveggja áratuga þjónustu við húsfélög, hversu mikilvægt það er fyrir eldri borgara að geta dvalið sem lengst á sínum heimilum og tökum því hattinn ofan fyrir dagdeild öldrunar á Landakoti og annarri sambærilegri starfsemi.“