Eignaumsjón er orðin 10 ára (ath. kennitalan líka). Fyrstu fimm árin voru vitaskuld mótunarár og gekk á ýmsu við rekstur félagsins. Frá árinu 2006 hefur starfsemin einskorðast við tvennt; umsjón húsfélaga annars vegar og umsjón leigufélaga hins vegar.
Og núna, árið 2011, er félagið tvímælalaust leiðandi í þeirri þjónustu sem það veitir og hyggst vera það áfram. Seinni ár hafa einkennst af stöðugleika. Starfsmannavelta er mjög lítil, stöðugt er unnið að umbótum í þjónustunni og vöxtur félagsins er jafn og góður.
Það er fyrst og fremst öfluugu og hæfu starfsfólki að þakka að félagið stendur eftir erfið ár í byrjun og síðan þá erfiðleika sem fyrirtæki og heimili hafa gengið í gegnum í kjölfar bankakreppunnar á Íslandi.