Það er ekkert einhlýtt svar þegar spurt er hvenær eigi að byrja að huga að viðhaldi fasteigna en það er reynsla okkar hjá Eignumsjón, sem höfum yfir 20 ára þekkingu og reynslu í þessum efnum, að haustið sé kjörinn tími til að byrja að huga að viðhaldsframkvæmdum næsta sumars.
Undirbúningur og ákvarðanir um stærri viðhaldsframkvæmda hjá húsfélögum taka alla jafnan nokkurn tíma. Eigendur þurfa bæði að vega og meta viðhaldsþörf, forgangsröðun og eigin fjárhagsgetu en gott samráð og húsfundir eru lykill að farsælli niðurstöðu. Oftar en ekki þarf líka að halda nokkra húsfundi, áður en endanleg niðurstaða og ákvörðun liggur fyrir.
Horfum til lengri tíma
„Íslenska aðferðin“ hefur lengi verið sú að bíða með viðhald og viðgerðir þar til í óefni er komið, með tilheyrandi aukakostnaði. Þessu höfum við reynt að breyta hjá húsfélögum sem eru í þjónustu hjá okkur en þá reynir á eigendur í viðkomandi fjölbýli, sem þurfa að ná samstöðu um málið.
Það sem við ráðleggjum stjórnum húsfélaga sem hyggjast fara í umfangsmeiri viðhaldsframkvæmdir er að boða til löglegs fundar með eigendum þar sem ástand eignar og viðhald næstu ára er fundarefnið. Fyrsta skref er alla jafnan að veita stjórn heimild til að ráða sérfróðan aðila til að gera ástandsskýrslu og kostnaðarmat vegna viðgerða og viðhalds sem kynntar eru á húsfundi þar sem ákvörðun er tekin um forgang viðhaldsverkefna og stjórn veitt heimild til að afla tilboða í verkið. Tilboð eru kynnt á húsfundi með sundurliðun á aðgerðum og kostnaði, ákveðið hvaða tilboði skuli taka og samið í framhaldinu við viðkomandi verktaka.
Betri yfirsýn yfir rekstur og kostnað
Með þessu verklagi eru minni líkur á óvæntum kostnaði vegna viðhaldsverkefna að okkar mati. Jafnframt fæst betri heildarmynd á allan rekstur og viðhald húsfélagsins og greiðsludreifing í framkvæmdasjóð húsfélagsins verður jafnari fyrir eigendur.
Eignaumsjón leggur að sjálfsögðu húsfélögum, sem eru í þjónustu hjá félaginu, lið við undirbúning viðhaldsframkvæmda. Hægt er að senda erindi á þjónustuverið á netfangið thjonusta@eignaumsjon.is, hafa samband á netspallinu á www.eignaumsjon.is eða hringa í síma 585-4800 með ósk um tilboð frá fagaðilum í ástandsmat vegna viðhaldsframkvæmda.