Eignaumsjón er í 12. sæti í flokki meðalstórra fyrirtækja í könnun VR um fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2022 en úrslitin voru kynnt í fjölmennri móttöku í gær, fimmtudaginn 19. maí, í Hörpu.
Alls fengu hátt í 50 fyrirtæki þessa viðurkenningu og þar af fengu fimm efstu fyrirtækin í stærðarflokkunum þremur nafnbótina Fyrirtæki ársins 2022. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra afhentu viðurkenningarnar.
Hvatning til að gera enn betur
„Þetta eru sannarlega ánægjuleg tíðindi fyrir okkur og hvatning til að gera enn betur,“ segir Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, sem tók við viðurkenningunni úr hendi forsætisráðherra í gær.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við erum í flokki meðalstórra fyrirtækja í könnun VR, með rétt rúmlega 30 starfsmenn, og ánægjulegt að sjá að við fáum 12 bestu heildareinkunn þeirra 38 fyrirtækja sem eru í þessum flokki og eitt þeirra 15 fyrirtækja í flokknum sem fá viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2022,“ segir Daníel og bætir við að gildi svona könnunar séu margvísleg fyrir stjórnendur Eignaumsjónar.
„Könnunin segir okkur hvar við höfum verið að standa okkur vel en enn mikilvægara er að hún segir okkur líka hvar þarf að gera betur, jafnframt því að veita okkur mikilvæga innsýn í hver staða okkar er í samanburði við önnur fyrirtæki á vinnumarkaði.“
Nánari upplýsingarnar um könnunina og niðurstöður hennar er að finna hér.