Anna Kristín Sigurðardóttir og Hjálmdís Ólöf Helenudóttir komu til starfa á fjármálasviði Eignaumsjónar fyrr á þessu ári. Þær starfa í gjaldkerateymi fyrirtækisins og sinna m.a. greiðslu reikninga fyrir viðskiptavini, stýringu fjármuna viðskiptavina og samskiptum við fjármálastofnanir í samvinnu við forstöðumann fjármálasviðs og fjárhagslegum samskiptum við viðskiptavini og þjónustuaðila.
Anna Kristín starfaði í yfir áratug við gjaldkerastörf og fjárstýringu hjá Actavis Group og við bókhald hjá Eykt, áður en hún kom til starfa hjá Eignaumsjón í febrúar. Hún hefur lokið námi í heilbrigðisgagnafræði frá Háskóla Íslands, er með stúdentspróf frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti og hefur stundað nám í Navision fjárhagsbókhaldi hjá Promennt.
Hjálmdís starfaði við greiðsluþjónustu hjá fjármálafyrirtækinu SaltPay áður en hún réðst til starfa hjá Eignaumsjón í maí. Áður stafaði hún hjá Resource Solutions á Bretlandi og þar áður sem gjaldkeri hjá Landsbankanum á Seyðisfirði. Hjálmdís er með meistaragráðu í viðskiptafræði og mannauðsstjórnun frá Thomas University í Georgíufylki í Bandaríkjunum, BSc gráðu í viðskiptastjórnun frá sama skóla og stúdentspróf frá Menntaskólanum á Egilsstöðum.
Um Eignaumsjón
Eignaumsjón hf. er umsvifamesta fyrirtæki landsins í þjónustu við hús- og rekstrarfélög fasteigna. Það er brautryðjandi í þessari þjónustu hér á landi. Fjöldi starfsfólks er 35 hjá fyrirtækinu og hefur það umsjón með daglegum rekstri ríflega 800 félaga með 18.800 fasteignum.