Húsumsjón er sérsniðin þjónusta hjá Eignaumsjón fyrir húsfélög og atvinnuhús sem vilja reglubundna umsjón með sameign fasteigna. Þjónustan kemur í stað hefðbundinnar húsvörslu og er hagkvæm lausn fyrir húsfélög og rekstrarfélög.
Með því að útvega fagmann í hlutastarfi, sem fer reglulega yfir ástand húseignarinnar og sinnir nauðsynlegum smáverkum, stuðlar Húsumsjón að lægri viðhaldskostnaði og tryggir að ásýnd fasteignarinnar sé eins og best verður á kosið.
Helstu verk sem Húsumsjón sinnir
- Eftirlit með kerfum og búnaði: Reglubundið eftirlit með ræstingu, sorphirðu, snjóbræðslukerfum, öryggis- og aðgangskerfum, loftræstingu og álestri sameiginlegra mæla.
- Ábendingar og tillögur: Greining á þörf fyrir aðgerðir eins og sótthreinsun sorpgeymslu, teppahreinsun í sameign, málun sameignar eða bílastæða, þrif á bílageymslu og gluggum og athugun á vatnshita.
- Umsjón og eftirlit með sameign: Eftirlit með umgengni á lóð og í sameign, ástandi sorpgeymslu og notkun bílastæða.
- Brunavarnir: Eftirlit með slökkvitækjum, lýsingu, reykskynjurum og brunastöðum í sameign.
- Viðhald og umhirða: Athugun á lýsingu, neyðarlýsingu, húsbúnaði og umgengni um lóð og sameign.
Með því að sinna þessum verkum reglulega hjálpar Húsumsjón til við að fyrirbyggja stærri vandamál sem dregur úr heildarviðhaldskostnaði fasteignarinnar. Þetta stuðlar líka að betra ástandi eignarinnar og eykur öryggi og vellíðan fyrir alla íbúa.
Nánari upplýsingar um Húsumsjón er að finna hér.