Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmarkanir vegna kórónuveirunnar tók gildi í dag, þriðjudaginn 25. maí. Almennar fjöldatakmarkanir hafa nú verið færðar úr 50 manns í 150 og þá verður grímuskylda frekar undantekning en regla.
Allt að 300 mega sækja viðburði þar sem gestir sitja
Á viðburðum þar sem gestir sitja mega allt að 300 manns mega vera viðstaddir, s.s. við athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga, sviðslistar- menningar- og íþróttaviðburði, ráðstefnur, fyrirlestra og sambærilega viðburði, þ. á m. húsfélagafundum, að uppfylltum öllum eftirtöldum skilyrðum.
- Gestir mega ekki sitja andspænis hver öðrum nema meira en tveir metrar séu á milli þeirra.
- Heimiluð nándarmörk milli ótengdra aðila eru 1 metri í sætum.
- Þátttaka allra gesta skal skráð á númeruð sæti þar sem fram kemur nafn, kennitala og símanúmer. Varðveita skal skráninguna í tvær vikur.
- Allir skulu nota andlitsgrímu og tryggt að fjarlægð milli ótengdra aðila sé meiri en 1 metri.
- Heimilt er að hafa hlé á sýningum og veitingar (áfengis- og aðrar) á viðburðum er heimil.
- Koma skal í veg fyrir hópamyndanir, jafnt fyrir og eftir viðburð og í hléi og að þá komi ekki fleiri en 150 saman og 2 metra nálægðarmörk séu virt.
- Koma skal í veg fyrir blöndun milli hólfa, m.a. fyrir og að loknum viðburði.
Ef ekki er hægt að uppfylla eitthvert ofnagreindra skilyrða gildir reglan um 150 manna hámarksfjölda á viðburðinum.
Innan við 100 fundir eftir hjá Eignaumsjón
Alls er nú búið að halda vel á fimmta hundrað fundi frá áramótum hjá Eignaumsjón, um 40 fundir eru boðaðir í þessari viku og næstu. Jafnframt er verið að vinna að boðun síðustu 40 aðalfundanna, þannig að góðar líkur eru á að öllum aðalfundum verið lokið fyrir sumarfrí, komi ekkert óvænt upp á.