REKSTUR HÚSFÉLAGA
Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, segir hækkað endurgreiðsluhlutfall og rýmri heimildir af vinnuliðum eiga þátt í auknum endurgreiðslum vegna endurbóta húsfélaga á húsnæði.
Eignaumsjón hafði um áramótin sótt um endurgreiðslu virðisaukaskatts að fjárhæð 375 milljónir króna fyrir hönd húsfélaga í þjónustu félagsins vegna endurbóta, viðhalds og reksturs í tengslum við átakið „Allir vinna“ árið 2020.
Endurgreiðsluhlutfallið var 60% vegna viðhalds en var hækkað í 100%. Skilyrðin voru jafnframt rýmkuð og nær endurgreiðslan nú einnig til þjónustu vegna hönnunar og eftirlits með byggingum, viðhalds og endurbóta íbúðar- og frístundahúsnæðis og vinnu manna vegna heimilisaðstoðar eða reglulegrar umhirðu íbúðarhúsnæðis.
Nær til þrifa í sameign
Daníel segir að með þessari útvíkkun sé hægt að fá endurgreiddan virðisaukaskatt af vinnu vegna ýmiss konar þjónustu. Þar megi nefna vinnu við þrif í sameign, umhirðu sameignar og húsumsjón, þrif og sótthreinsun á sorpgeymslum og sorpílátum og garðvinnu, s.s. garðslátt og trjá- og runnaklippingar.
Dregur úr svartri vinnu
Daníel segir endurgreiðslurnar örva eftirspurn. Þá auki þær líkur á að húsfélög gefi upp kaup á þjónustu
sem dragi úr undanskotum. Þá hafi þær styrkt rekstur fyrirtækja sem þjónusta húsfélög, en almennt hafi slíkum fyrirtækjum vegnað vel í fyrra. Það færist í vöxt að húsfélög kaupi þjónustu, ekki síst minni og meðalstór á höfuðborgarsvæðinu.
Viðtalið birtist í Viðskiptablaði Morgunblaðsins 27. janúar 2021.