Félagasamtökin Grænni Byggð, sem rekin eru án hagnaðarmarkmiðs og tengjast alþjóðlega tengslanetinu World Green Building Council, luku nýverið við gerð leiðbeininga fyrir húsfélög um umhverfisvænni rekstur.
Grænni byggð vann að leiðbeiningunum í samstarfi við Eignaumsjón og SORPU og með styrk frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Leiðbeiningunum er ætlað að hjálpa húsfélögum í fjöleignarhúsum að lágmarka umhverfisáhrif og tileinka sér umhverfisvænni rekstur. Þær eru aðgengilegar á netinu, á heimasíðu Grænni byggðar.
Á fimmta tug félaga um allt land, þar á meðal Eiganumsjón, eiga aðild að Grænni byggð. Hlutverk samtakanna er að breyta hinu byggða umhverfi til vistvænni hátta þannig að Ísland standi við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum.