Oft er spurt hvaða tími er „réttur“ til að huga að viðhaldi fasteigna. Það er ekkert einhlýtt svar við þessari spurningu en við hjá Eignaumsjón, sem höfum í yfir tvo áratugi aðstoðað fjölmörg húsfélög við ákvarðanatöku um viðhaldsframkvæmdir, teljum haustið kjörinn tíma til að byrja að huga að viðhaldsframkvæmdum næsta sumars.
Undirbúningur og ákvarðanir vegna stærri viðhaldsframkvæmda húsfélaga er ferli sem tekur alla jafnan töluverðan tíma því eigendur þurfa að vega og meta viðhaldsþörf, forgangsröðun og eigin fjárhagsgetu. Gott samráð og húsfundir eru lykill að farsælli niðurstöðu og oftar en ekki þarf að halda þó nokkra húsfundi, áður en endanleg niðurstaða og ákvörðun liggur fyrir.
Horfum til lengri tíma
Við leggjum ríka áherslu á að hugað sé að reglubundnu viðhaldi til lengri tíma, ekki síst varðandi fjármögnun viðhaldskostnaðar en „íslenska aðferðin“ hefur lengi verið sú að bíða með viðhald og viðgerðir þar til í óefni er komið, með tilheyrandi aukakostnaði. Við ráðleggjum stjórnum húsfélaga sem hyggjast fara í umfangsmeiri viðhaldsframkvæmdir að:
- Boða til löglegs fundar með eigendum þar sem ástand eignar og viðhald næstu ára er fundarefnið. Stjórn fái samþykki fundar til að ráða sérfróðan aðila til að gera greinargóða ástandsskýrslu og kostnaðarmat vegna viðgerða og viðhalds.
- Þegar ástandsskýrsla liggur fyrir er hún kynnt á húsfundi og ákvörðun tekin um forgang viðhaldsverkefna. Stjórn fær jafnframt samþykki húsfundar fyrir öflun tilboða.
- Þegar tilboð liggja fyrir eru þau kynnt á húsfundi með sundurliðun á aðgerðum og kostnaði. Að kynningu lokinni er tekin ákvörðun um hvaða tilboði skuli taka og í framhaldinu er samið við viðkomandi verktaka, gerðir verksamninga og samið við eftirlitsaðila, þegar það á við.
Betri yfirsýn yfir rekstur og kostnað
Með þessu verklagi eru minni líkur á óvæntum kostnaði vegna viðhaldsverkefna. Jafnframt fæst betri heildarmynd á allan rekstur og viðhald húsfélagsins og síðast, en ekki síst, verður greiðsludreifing í framkvæmdasjóð húsfélagsins jafnari fyrir eigendur.
Að sjálfsögðu leggur Eignaumsjón húsfélögum sem eru í þjónustu hjá félaginu lið í þessum efnum. Hægt er að senda erindi á þjónustuverið okkar, á netfangið thjonusta@eignaumsjon.is eða hringa í síma 585-4800 og óska eftir nánari ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar um hvernig best er að byrja að huga að viðhaldsframkvæmdum næsta sumars!