Húsbók – mínar síður eigenda
Húsbókin er rafræn þjónustu- og upplýsingaveita á eignaumsjon.is þar sem leitast er við að gera aðgengileg öll helstu gögn fyrir eigendur í hús- og rekstrarfélögum í þjónustu hjá Eignaumsjón. Eigendur og greiðendur þurfa að samþykkja skilmála Húsbókarinnar með netfangi sínu þegar farið er inn í fyrsta sinn. Þeim er einnig heimilt að veita umboðshöfum aðgang að sínum Húsbókaraðgangi með því að slá inn kennitölu viðkomandi og veita samþykki. Í framhaldinu getur umboðshafi skráð sig inn í Húsbókina á sínum rafrænu skilríkjum.
Í Húsbókinni eru öll helstu gögn viðkomandi húsfélags og í aðdraganda hús- og aðalfunda eru fundargögn aðgengileg eigendum, til upplýsingar og skoðunar fyrir fund.
Hvaða gögn er hægt að skoða?
Eigendur sjá m.a.:
» Húsgjöldin sín (greiðsluseðlar/kröfusaga)
» Fundargerðir
» Ársreikninga
» Kostnaðaráætlanir
» Tryggingarskírteini
» Ýmis gögn sem snúa að viðhaldi og framkvæmdum húsfélagsins
Stjórnarmenn sjá m.a.:
» Daglega fjárhagsstöðu húsfélags
» Stöðu bankareikninga
» Útistandandi húsgjöld/framkvæmdagjöld
» Stöðu innheimtukrafna allra greiðenda
» Eftirlitsskýrslur húsumsjónar, ef við á
» Önnur gögn sem snúa að stjórn húsfélagsins
» Uppfærðan eigenda- og eignalista á hverjum tíma
Þjónustubeiðnir
Hægt er að senda ýmsar beiðnir rafrænt í gegnum Húsbókina. Þar má t.d. nefna tilkynningar um nafnabreytingar, eigendaskipti , breytingar á heimilisfangi, yfirlýsingu húsfélags vegna sölu á fasteign, senda inn beiðnir vegna útlagðs kostnaðar og virkja afslætti sem standa viðskiptavinum Eignaumsjónar til boða.
Aðgangsstýringar
Innskráning í Húsbókina er aðgangsstýrð til að tryggja gagnaöryggi. Notandi (eigandi/greiðandi) skráir sig inn með rafrænum skilríkjum, s.s. í snjallsíma eða með auðkennisappi. Bæði einstaklingar og prókúruhafar fyrirtækja geta heimilað öðrum að fara með málefni viðkomandi einstaklings eða lögaðila í Húsbókinni. Hlekkur til að veita umboð er á eignaumsjon.is/umbod-fyrir-husbokina.
Aðgengilegar upplýsingar auka gagnsæi og virði eigna
Húsbókin er mikilvægt skref í að veita eigendum fasteigna ítarlegar og gagnlegar upplýsingar og verður leitast við að efla hana enn frekar í framtíðinni því aðgengilegar upplýsingar auka virði eigna og þess njóta þá eigendur eigna sem tengjast hús- og rekstrarfélögum í þjónustu Eignaumsjónar.