Eftirspurn eftir faglegu eftirliti og umsjón með sameign húsfélaga og atvinnuhúsa hefur aukist jafnt og þétt á þeim sex árum sem liðin eru frá því að Eignaumsjón hóf að bjóða upp á húsumsjón vorið 2017.
Í upphafi sinnti einn starfsmaður öllum verkefnum húsumsjónar, árið 2019 voru umsjónarmennirnir orðnir tveir talsins og í dag eru fastráðnir húsumsjónarmenn fjórir talsins.
Húsvörður í hlutastarfi er hagkvæm lausn
„Húsumsjón kemur í stað hefðbundinnar húsvörslu og er fagleg, hagkvæm og skynsamleg lausn fyrir fjölda hús- og rekstrarfélaga,“ segir Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar.
Viðskiptavinir ákveða tíðni þjónustunnar eftir þörfum hvers og eins en í boði er allt frá daglegum eftirlitsheimsóknum til heimsókna á eins til tveggja vikna fresti, allt eftir því hvað hentar.
„Við tölum gjarnan um þessa þjónustu sem „húsvörð í hlutastarfi“ og með því að nýta sér hana geta húsfélög og rekstrarfélög atvinnuhúsnæðis bæði lækkað viðhaldskostnað en eftir sem áður tryggt að ástand sameigna viðkomandi fasteigna sé eins og best verður á kosið,“ bætir framkvæmdastjórinn við.
Stöðuskýrsla að lokinni hverri heimsókn
Húsumsjónarmenn Eignaumsjónar vinna samkvæmt skráðum verkferlum og fylgja fyrir fram ákveðinni verklýsingu fyrir hvern viðskiptavin, sem tekur til bæði umgengni, ástands og ásýndar sameignar, yfirferðar á búnaði húseignarinnar, lagfæringum, eftirliti og eftirfylgni með aðkeyptri þjónustu frá þriðja aðila.
„Góð upplýsingagjöf til viðskiptavina og samskipti skipta sköpum fyrir þjónustufyrirtæki eins og okkar og því skilum við skýrslu til stjórnar viðkomandi húseignar að lokinni hverri heimsókn,“ segir Daníel og bætir við þessi skýrslugjöf hafi mælst mjög vel fyrir. „Þar er upplýst um ástand sameignar og það sem gert var, jafnframt því sem settar eru fram ábendingar um það sem betur má fara varðandi sameign viðkomandi húseignar sem er í húsumsjón hjá okkur í Eignaumsjón“.
Nánari upplýsignar um húsumsjón er að finna hér.