Húsfélagið að Löngulínu 2 í Garðabæ vill ráða húsvörð – staðarhaldara í hlutastarf (30-35%) auk nokkurra aukaverka eftir samkomulagi.
Fastur vinnutími er mánudaga – miðvikudaga og föstudaga, frá kl. 8-12.
Í húsinu eru 48 íbúðir í þremur stigagöngum ásamt bílgeymslu.
Verkefni staðarhaldara eru almenn þrif á sameign, umhirða lóðar, bílastæði og bílageymslu auk minniháttar viðhalds og endurbóta.
Staðarhaldari þarf að vera sérstaklega þrifsækinn, laghentur, útsjónarsamur og hafa auga fyrir því sem betur má fara.
Skriflegar umsóknir berist til Eignaumsjón hf. Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík eða á starfsumsokn@eignaumsjon.is
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2017.