Íbúðaumsjón – rekstur og eftirlit
Íbúðaumsjón er þjónustuleið fyrir eigendur fasteigna á höfuðborgarsvæðinu, sem eru ekki með fasta búsetu í eignum sínum. Þjónustan er sérsniðin að þörfum íbúðareiganda sem vilja tryggja enn betur öryggi fasteigna sinna og nær bæði til reglubundins eftirlits og reksturs.
Viðskiptavinir þurfa að hafa íslenska kennitölu og veita Eignaumsjón prókúru að rekstrarreikningum viðkomandi eigna, ef við á.
Rekstur íbúða
Umsjón með fjármálum sem tengjast fasteign
- » Greiðsla kostnaðar og gjalda
- » Samskipti við fjármálastofnanir og hið opinbera
- » Rekstraruppgjör lagt fram að jafnaði tvisvar á ári
- » Kostnaðaráætlun lögð fram á grundvelli uppgjörs
Þjónustusamningar hjá völdum þjónustufyrirtækjum
- » Samskipti og gerð samninga um þrif- og hreingerningaþjónustu
- » Samskipti og gerð samninga við iðnaðarmenn
- » Samskipti og gerð samninga um sérþjónustu sem óskað er eftir
Eftirlit íbúða
- » Reglubundnar eftirlitsheimsóknir og ástandsskoðun íbúða
- » Eftirlit með aðgangs- og öryggiskerfum og samskipti við öryggisfyrirtæki