Samningurinn nær til raforkunotkunar
í sameignum allra húsfélaga og rekstrarfélaga atvinnuhúsa sem eru í þjónustu hjá Eignaumsjón. Samkomulagið nær jafnframt til félagsmanna í viðkomandi hús- og rekstrarfélögum. Íbúðaeigendur í húsfélögum sem eru í þjónustu hjá Eignaumsjón geta einnig nýtt sér þessi afsláttarkjör fyrir sína séreign/ir.
- Stjórn hús- eða rekstrarfélags sem vill flytja raforkukaup sín til HS Orku þarf að senda staðfestingu þar um á netfangið thjonusta@eignaumsjon. Þjónustuver Eignaumsjónar gengur í framhaldinu frá flutningnum og sendir tilkynningu til HS Orku með nafni, kennitölu og heimilisfangi viðkomandi húsfélags eða rekstrarfélags.
- Eigendur eigna í rekstrar- og/eða húsfélagi sem er í umsjón Eignaumsjónar geta skilað inn rafrænni beiðni um rafmagnsviðskipti beint á vef HS Orku. Smellið á hnappinn “Komdu í viðskipti” í flipanum “Rafmagn” og skráið ykkur inn með rafrænum skilríkjum. Þá kemur upp valmyndin “Notkunarstaðir” þar sem þarf að velja/skrá heimilisfang í felliglugga undir “Heimilsifang” og staðfesta síðan að húsfélagið tilheyri fjöleignaumsýslu með því að velja Já og Eignaumsjón í felligluggum undir “Fjöleignaumsýsla”.