Persónuvernd og skilmálar
Persónuverndarstefna Eignaumsjónar er sett með vísan í lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, lög nr. 90/2018. Við alla vinnslu persónuupplýsinga hefur Eignaumsjón að leiðarljósi að tryggja trúnað, áreiðanleika og öryggi persónuupplýsinga. Eignaumsjón gætir að persónuvernd þeirra sem heimsækja vefsíðu fyrirtækisins og Húsbók – mínar síður eigenda. Upplýsingar sem auðkenna þá sem heimsækja vef Eignaumsjónar eru aðeins skráðar og vistaðar í viðskiptasögu þegar notendur veita fyrir því upplýst samþykki.
Húsbókin
Til að fá aðgang að Húsbókinni þarf notendaaðgangur/notandi að vera með netfang, m.a. svo hægt sé að hafa samskipti og/eða miðla upplýsingum til viðkomandi. Með því að slá inn og vista netfang í Húsbókinni veitir viðkomandi Eignaumsjón heimild til að nota þessar tilteknu persónuupplýsingar til innskráningar. Innskráning og vistun netfangs í húsbókinni heimilar jafnframt Eignaumsjón og stjórn viðkomandi húsfélags á hverjum tíma að senda tilkynningar/upplýsingar á skráð netföng.
Vefkökur
Eignaumsjón notar vefkökur (e.cookies) í þeim tilgangi að bæta vefsíðu fyrirtækisins, bæði aðgengi og þjónustuna almennt. Til að nýta sem best þá eiginleika sem vefsíðan bíður upp á þurfa notendur að samþykkja vefkökur. Vefkökur eru litlar textaskrár sem vefsvæði vistar á tölvu eða snjalltæki þeirra sem heimsækja vefsíður. Vefkökur gera það kleift að fá nafnlausar upplýsingar um hvernig er verið að nota vefi og muna stillingar notenda í ákveðinn tíma. Notendur sem vilja ekki að upplýsingar frá þeim skráist í vefkökur geta breytt stillingum í vafranum þannig að umræddar upplýsingar vistist ekki, nema að fengnu samþykki. Einnig er hægt að stilla vafra til að útiloka og eyða kökum.
Gagnasöfnun og greining
Eignaumsjón notar gögn frá vefgreiningarþjónustu Google Analytics til að þróa og lagfæra vefsíðu fyrirtækisins og gera notendum auðveldara að finna upplýsingar. Google safnar upplýsingum nafnlaust og upplýsingar um notkun á eignaumsjon.is eru ekki persónugreinanlegar. Google kann að senda umræddar upplýsingar til þriðja aðila þegar lög krefjast þess, eða þegar þriðji aðili vinnur úr upplýsingunum fyrir hönd Google. Google tengir ekki IP-tölu viðkomandi notanda við önnur gögn sem Google hefur í fórum sínum.
Eignaumsjón notar netspjallþjónustuna Zendesk. Þar eru upplýsingar notaðar til að eiga samskipti við notendur og veita upplýsingar.
Meðferð tölvupósts
Allar upplýsingar sem fram koma í tölvupóstum og viðhengjum frá Eignaumsjón eru trúnaðarmál og eingöngu ætlaðar þeim sem pósturinn er stílaður á, eða fulltrúa hans. Hafi tölvupósturinn borist röngum aðila er móttakanda hans, með vísan til 9. mgr. 47. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti, skylt að gæta fyllsta trúnaðar og tilkynna sendanda samtímis að upplýsingarnar hafi ranglega borist sér. Í þeim tilvikum skal móttakandi eyða póstinum ásamt viðhengjum. Misnotkun á efni upplýsinganna eða fjölföldun er óheimil og getur verið refsiverð samkvæmt lögum.