Fundarsalir til leigu – Suðurlandsbraut 30
Tveir allt að 50 manna fundarsalir eru til leigu hjá Eignaumsjón á Suðurlandsbraut 30, miðsvæðis í Reykjavík. Þeir henta vel fyrir bæði fundi, fyrirlestra, námskeið og kennslu og geta einnig verið góður kostur fyrir þá sem þurfa að leigja sal eða vinnurými á föstum tímum, t.d. einu sinni í viku eða oftar.
Salirnir eru á jarðhæð í austurenda hússins. Inngangur í báða salina er um merktar dyr austan við inngang að skrifstofu Eignaumsjónar.
Bílastæði eru bæði framan og aftan við húsið. Gott aðgengi og þægileg aðkoma er fyrir jafnt gangandi, hjólandi sem akandi fundargesti. Strætóstoppistöðvar eru einnig framan við húsið, beggja vegna Suðurlandsbrautar.
Um salina
Laugarás: Salurinn, sem er um 60 fermetrar að grunnfleti, tekur allt að 50 manns í sæti. Hann er bjartur og snyrtilegur og með góðri loftræstingu. Þráðlaust net, tölvu- og fjarfundarbúnaður er í salnum, ásamt 80 tommu upplýsingaskjá (led) sem getur tengst fartölvu ef óskað er.
Grensás: Salurinn, sem er um 55 fermetrar að grunnfleti, tekur allt að 50 manns í sæti. Hann er snyrtilegur og með góðri lýsingu og loftræstingu. Tölvu- og fjarfundarbúnaður og þráðlaust net er í salnum, ásamt 80 tommu upplýsingaskjá (led) sem getur tengst fartölvu ef óskað er.
- Salirnir eru til útleigu alla daga vikunnar, bæði að degi til og kvöldi. Leigutími er að jafnaði 2 klst. Fast tímagjald er innheimt fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram leigutíma.
- Innifalið í leigu er; fundarsalur, 50 stólar, borð fyrir fundarstjóra og fráleggsborð, afnot af upplýsingaskjá og borðtölvu.
- Ef óskað er eftir að nota fjarfundarbúnað þarf að taka það fram þegar gengið er frá salarleigu og fær leigutaki þá leiðbeiningar um virkjun búnaðar. Greitt er sérstaklega fyrir afnot af fjarfundarbúnaði.
- Hægt er að fá kaffiuppáhelling milli kl. 8-17 á virkum dögum. Aðgangur er að salernisaðstöðu á jarðhæð um gang og upp tvær tröppur að þremur salernum og snyrtiaðstöðu en hjólastólaaðgengi er ekki til staðar.
- Við skil er miðað við að frágangur í fundarsölum sé með sama hætti og tekið var við þeim og umgengi þrifaleg.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofutíma í síma 585-4800. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið thjonusta@eignaumsjon.is
Laugarás: Salurinn, sem er um 60 fermetrar að grunnfleti, tekur allt að 50 manns í sæti. Hann er bjartur og snyrtilegur og með góðri loftræstingu. Þráðlaust net, tölvu- og fjarfundarbúnaður er í salnum, ásamt 80 tommu upplýsingaskjá (led) sem getur tengst fartölvu ef óskað er.
Grensás: Salurinn, sem er um 55 fermetrar að grunnfleti, tekur allt að 50 manns í sæti. Hann er snyrtilegur og með góðri lýsingu og loftræstingu. Tölvu- og fjarfundarbúnaður og þráðlaust net er í salnum, ásamt 80 tommu upplýsingaskjá (led) sem getur tengst fartölvu ef óskað er..