Oct 7, 2023 | Fréttir
Á sama hátt og skattaívilnanir vegna kaupa á rafbílum falla niður um áramótin, renna líka út á sama tíma ívilnanir um vsk endurgreiðslur til stjórna húsfélaga og íbúðaeigenda, sem eru að kaupa vinnu við uppsetningu hleðslustöðva fyrir rafbíla í eða við sitt fjölbýlishús eða heimili.
VSK ívilnanir vegna uppsetningar hleðslukerfa og af hleðslustöðvum, sem tóku gildi í ársbyrjun 2020 og gilda til ársloka 2023, eru liður í aðgerðum stjórnvalda að rafvæða bílaflota landsmanna til að flýta fyrir orkuskiptum með því. Samkvæmt þessum ívilnunum eiga bæði húsfélög og íbúðaeigendur sem eru að kaupa vinnu við uppsetningu hleðslustöðva fyrir rafbíla í eða við sitt fjölbýlishús eða heimili, rétt á að fá virðisaukaskatt endurgreiddan að fullu af vinnu við uppsetningu hleðslukerfis sem og af hleðslustöðum fyrir ofangreint tímabil.
Eignaumsjón sér að sjálfsögðu um að sækja um VSK-endurgreiðslur fyrir húsfélög og aðra viðskiptavini félagsins, samkvæmt greiddum reikningum. Tímamörk á endurgreiðslu miðast við sex ár, samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Skattsins, talið frá því að endurgreiðsluréttur stofnaðist samkvæmt útgáfudegi reikninga.
Sep 30, 2023 | Fréttir
Starfsemi Eignaumsjónar hefur verið endurskipulögð til að betrumbæta þjónustu við viðskiptavini og mæta nýjum verkefnum og auknum umsvifum fyrirtækisins. Breytingarnar fela m.a. í sér að starfsemi Húsumsjónar er færð undir þjónustusvið og jafnframt hefur nýr forstöðumaður þjónustusviðs verið ráðinn til starfa.
„Með þessum skipulagsbreytingum erum við að samstilla betur þjónustu okkar við hús- og rekstrarfélögin á tveimur meginsviðum, fjármálasviði og þjónustusviði. Fjármálasviðið annast alla þjónustu er snýr að fjármálum en Húsumsjón, sérþjónusta okkar við stærri hús- og rekstrarfélög og rafbílahleðsluþjónusta fyrir húsfélög, færast undir þjónustusviðið, til viðbótar við ráðgjafar-, funda- og þjónustuverkefni,“ segir Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar.
Nýr forstöðumaður þjónustusviðs
Gunnþór Steinar Jónsson er nýr forstöðumaður þjónustusviðs. Gunnþór er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og kemur til Eignaumsjónar frá Marel, þar sem hann starfaði í sex ár, lengst af sem yfirmaður þjónustu við viðskiptavini erlendis og viðskiptaráðgjöf og markaðsgreiningar. Áður starfaði Gunnþór m.a. hjá Íslandsbanka í yfir áratug, bæði sem lána- og viðskiptastjóri og í fyrirtækja- og einstaklingsráðgjöf.
Nýtt skipurit – ný stoðsvið
Til viðbótar við meginsviðin tvö eru í nýju skipuriti Eignaumsjónar fjögur stoðsvið, sem heyra undir framkvæmdastjóra.
- Atvinnuhús: Sigurbjörg Leifsdóttir, viðskiptafræðingur og fyrrum forstöðumaður fasteignasviðs, leiðir áfram þjónustu við atvinnuhús. Íbúðaumsjón, ný sérþjónusta Eignaumsjónar og sérverkefni heyra einnig undir sviðið.
- Sala og samskipti: Sölu-, markaðs- og kynningarmál eru sameinuð undir einum hatti. Páll Þór Ármann, rekstrarhagfræðingur og fyrrum forstöðumaður þjónustusviðs, er þar í forsvari.
- Þróun: Stærri og flóknari fjöleignarhús kalla á sérhæfðri þjónustu og fjölbreytilega aðstoð. Bjarni G. Hjarðar, byggingar- og umhverfisverkfræðingur, leiðir þróunarvinnu Eignaumsjónar.
- Tækni: Upplýsingatækni er æ mikilvægari í starfsemi Eignaumsjónar til að tryggja skilvirka upplýsingagjöf og örugga geymslu gagna. Emil Hilmarsson tölvunarfræðingur er upplýsingastjóri Eignaumsjónar.
Breytt framkvæmdastjórn
Breytt framkvæmdastjórn Eignaumsjónar er skipuð Daníel Árnasyni framkvæmdastjóra, Ágústu Katrínu Auðunsdóttur, forstöðumanni fjármálasviðs og Gunnþóri Steinari Jónssyni, forstöðumanni þjónustusviðs.
Jun 26, 2023 | Fréttir
RÚV greinir frá því í dag að Orkustofnun telji mæla í hleðslustöðvum Orku náttúrunnar standast kröfur og því hafi langvarandi réttaróvissu verið eytt um hvaða kröfur sölumælar í hleðslustöðvum skuli uppfylla, í það minnsta í bili.
Forsaga málsin er að fyrirtækið Ísorka, sem selur hleðslulausnir, kvartaði formlega til Orkustofnunar og óskaði eftir að stofnunin rannsakaði búnað hleðslustöðva sem samkeppnisaðili þess, Orka náttúrunnar, notar. Taldi Ísorka að mælar í hleðslustöðvum þyrftu að hafa svokallaða gerðarviðurkenningu, samkvæmt evrópskum stöðlum.
Krafa um gerðarviðurkenningu tekur bara til mælabúnaðar í dreifiveitum
Orkustofnun tók í fyrstu undir túlkun Ísorku og spurningar vöknuðu um hvort stór hluti hleðslustöðva á íslandi kynni að vera ólöglegur en samkvæmt frétt RÚV hefur Orkustofnun nú komist að þeirri niðurstöðu að mælar ON uppfylli lög. Er það mat stofnunarinnar að kröfur um gerðarviðurkenningu taki einungis til mælabúnaðar í dreifiveitum og ekki sé þörf á að mælibúnaður í hleðslustöðvum þjónustuveitenda uppfylli umræddar kröfur.
Bent er á í lok fréttar RÚV að ákvörðun Orkustofnunar megi kæra til úrskurðarnefndar raforkumála og að kærufrestur er 30 dagar. Nánar má lesa um niðurstöðu Orkustofnunar hér.
Apr 28, 2022 | Fréttir
Niðurstöður verðkannana sem Eignaumsjón hefur gert vegna uppsetningar hleðslukerfa rafbíla fyrir húsfélög sýna að meðalkostnaður við gott rafhleðslukerfi, bæði fyrir bílastæði í séreign og sameign, er um 100 þúsund krónur á hverja eign og fer heldur lækkandi.
Eignaumsjón hefur gert fjölda úttekta fyrir húsfélög vegna skyldu þeirra til að bregðast við beiðnum um aðgengi að hleðslukerfi fjöleignarhúss, í samræmi við nýleg ákvæði fjöleignarhúsalaganna.
Í framhaldi af úttektunum hafa sérfræðingar Eignaumsjónar aðstoðað stjórnir húsfélaga, sem þess hafa óskað, við að útvega tilboð miðað við fyrirliggjandi verkáætlanir. Samanburður á 12 nýlegum tilboðum okkar sýnir að næst hagstæðustu tilboðin í rafhleðslukerfi húsfélaga eru að meðaltali um 27% hærri en hagstæðustu tilboðin, eins og sjá má í meðfylgjandi stöplariti.
Samanburðurinn leiðir einnig í ljós að meðalkostnaður við gott rafhleðslukerfi, fyrir bæði bílastæði í séreign og sameign, er um 100 þúsund krónur á hverja eign og fer heldur lækkandi. Í fjöleignarhúsi sem telur 36 íbúðir er munurinn á lægsta og næst lægsta tilboði um ein milljón króna, auk þess sem úttekt og tilboð byggð á úttektinni eiga að tryggja að rafhleðslukerfi hússins virki til framtíðar, eins og önnur kerfi þess.
Til viðbótar við úttektir og verðkannanir/útvegun tilboða, er haldið utan um styrkumsóknir til sveitarfélaga (Reykjavík og fleiri sveitarfélög) hjá Eignaumsjón.
Nánari upplýsingar um þjónustu Eignaumsjónar vegna rafhleðslukerfa í fjöleignarhúsum og reksturs þeirra má finna hér.