Umhverfisáherslur
Í rekstri Eignaumsjónar og vinnu starfsfólks er reynt að stuðla að umhverfisvænum starfsháttum og hefur félagið m.a. gengið til liðs við Grænni byggð, sem er vettvangur um vistvæna þróun byggðar.
Eignaumsjón vill hvetja til umhverfisvitundar og umræðu um vistvænan rekstur hús- og rekstrarfélaga og er leitast við að hafa áhrif til góðs í þeim efnum á bæði viðskiptavini og starfsfólk. Vilji er til þess að rekstur félagsins og starfsfólk verði öðrum góð fyrirmynd og bæði innkaup og rekstur félagsins taki mið af umhverfissjónarmiðum þar sem því verður við komið.
Markmið okkar
- Endurnýta skal og endurvinna það sem fellur til í rekstrinum en farga öðru með viðeigandi hætti.
- Efla skal umhverfisvitund starfsfólks og miðla umhverfisvænum áherslum til viðskiptavina.
- Orkunotkun skal haldið í lágmarki og leitast við að draga úr mengun.
- Öll vöruþróun á vegum félagsins verði unnin með hliðjón af umhverfivænni viðskiptum.
- Birgjar félagsins sýni jákvæða umhverfisstefnu.
- Leitast verður við að hafa jákvæð áhrif á nærumhverfið með forvörnum og upplýsingum og vera fyrirmynd á sviði umhverfismála