Eignaumsjón hefur flutt skrifstofu sína af 4. hæð niður á jarðhæð í húsinu Suðurlandsbraut 30.
Í stað þess að ganga inn í stigahús er gengið beint inn á skrifstofuna að framanverðu.
Hjá okkur er nú opið frá kl. 09:00 til kl. 16:00 alla virka daga.
Um er að ræða nýinnréttað húsnæði sem er sérstaklega sniðið að þörfum og starfsemi Eignaumsjónar. Má í því sambandi nefna góða vinnuaðstöðu starfsmanna og vel útbúna fundarsali fyrir 30-35 manns. Einnig fylgir húsnæðinu fjöldi bílastæða framan hússins.
Við í Eignaumsjón hlökkum til að taka á móti gestum okkar og viðskiptavinum á nýjum stað.